Fimmtudagur, 17. júlí 2008
3DM - dansleikhús
frú Norma - leikhús í samvinnu við Menningarmiðstöð Fljótsdalshéraðs og Vinnuskólann á Fljótsdalshéraði frumsýnir 3DM, dans/leikhús verk sem veltir sér upp úr fegurð starfseminnar sem áður fór fram í Sláturhúsinu - Menningarsetri.3DM er dansleikhúsverk unnið með hópi 13 - 16 ára unglinga úr vinnuskóla Fljótsdalshéraðs.
Í verkinu eru sjónarhorn fjögurra mismunandi listrænna stjórnenda á Sláturhúsið fléttuð saman í eina heild. Verkið er bundið saman af texta Jónasar Reynis Gunnarssonar, ungs skálds af Fljótsdalshéraði.Leikstjórn og hreyfiferli er í höndum Péturs Ármannssonar, Jóns Vigfússonar, Halldóru Malinar Pétursdóttur og Guðjóns Sigvaldasonar.Í verkinu er unnið með sögu og hlutverk Sláturhússins, sem í dag er nýtt undir töluvert aðra starfsemi en áður var, en í dag eru þar til húsa vegaHúsið, Menningarsetur ungs fólks, Sláturhúsið - Menningasetur og frú Norma - leikhús.
Leikarar í 3DM eru:Baldvin Orri Smárason, Egill Magnússon, Egill Örn Þórðarson, Hans Hektor Hannesson, Inga Lind Clausen Bjarnadóttir, Katla Einarsdóttir, Kristrún Anna Borgþórsdóttir, Lísa Mist Smáradóttir, Sandra Ester Jónsdóttir og Ýmir Steinn Árnason.
Sýningar verða þrjár:
Sunnudag 20. júlí klukkan 20:00 - Frumsýning
Þriðjudag 22. júlí klukkan 20:00
Fimmtudag 24.júlí klukkan 20:00 - LOKASÝNING
Miðapantanir í síma 471-1166 og norma@frunorma.is
Flokkur: Menning og listir | Facebook
Nýjustu færslur
- 17.7.2008 3DM - dansleikhús
- 2.7.2008 VENTLASVÍN - AUKASÝNINGAR!
- 24.6.2008 Soffía mús í Hálsaskógi - myndir
- 21.6.2008 Fyrsta ferðalagi lokið
- 20.6.2008 Fyrsta ferðalag Soffíu - í Hálsaskóg (Djúpavogi)
Heimsóknir
Flettingar
- Í dag (19.4.): 0
- Sl. sólarhring: 1
- Sl. viku: 3
- Frá upphafi: 0
Annað
- Innlit í dag: 0
- Innlit sl. viku: 3
- Gestir í dag: 0
- IP-tölur í dag: 0
Uppfært á 3 mín. fresti.
Skýringar
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.